Þróun starfa í iðnaði hefur endurspeglað hagsveifluna og samkeppnisstöðuna. Í uppsveiflunni fjölgaði mjög störfum í iðnaði, sérstaklega í byggingariðnaði og hátæknigreinum iðnaðar eins og upplýsingatækni, lyfja- og lækningatækjaframleiðslu og í framleiðslu á sérhæfðum vélbúnaði. Þegar samdráttur varð í innlendri eftirspurn árin 2002 og 2003, fækkaði störfum í iðnaði. Með hækkun raungengis varð samdrátturinn sérstaklega mikill í hefbðundnum greinum í alþjóðlegri samkeppni, eins og málm- og skipasmíðum og plast- og veiðarfæragerð. Nú er uppsveifla hafin og störfum í iðnaði að fjölga á ný. Vegna verkefna í tengslum við stóriðjuframkvæmdir hefur störfum í málmiðnaði tekið að fjölga en störfum í veiðarfæragerð hélt áfram að fækka árið 2004. Horfur fyrir störf í iðnaði eru skárri nú en fyrir einu ári. |