Verðbólga á Íslandi jókst árið 2004. Mikil hækkun olíuverðs hefur haft áhrif þar um. Einnig hefur fasteignaverð hækkað jafnt og þétt undanfarin missiri, tengt aukinni bjartsýni í þjófélaginu, auðveldari aðgangi að lánsfé og betri lánskjörum. Verðbólga, mæld er með Kjarnavísitölu neysluverðs þar sem áhrif eldsneytisverðs, búvöru og opinberrar þjónustu á vísitöluna eru undanskilin, hafði einnig aukist og var komin yfir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans í árslok 2004. Verðbólga, mæld með vísitölu neysluverðs, nálgaðist þá 4%, sem eru efri þolmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands. Þrátt fyrir það gera spár ekki ráð fyrir að verðbólgan fari yfir þau mörk á komandi ári. Ríflegur kjarasamningur grunnskólakennara í nóvember 2004 hefur aukið óvissuna um verðþróunina, sérstaklega ef aðrar stéttir fylgja í kjölfarið og fara fram á svipaðar launahækkanir. |