Atvinnuleysi
Atvinnuleysi er tekið að minnka á landinu í heild aðallega vegna minnkandi atvinnuleysis úti á landsbyggðinni. Margvísleg starfsemi tengd stóriðjuframkvæmdum á Austurlandi er þar í fyrirrúmi. Það er athyglivert að atvinnuleysisstigið er venju fremur lægra á landsbyggðinni. Hins vegar eru mun meiri sveiflur tengdar árstíðum í atvinnuleysi á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Það má skýra með stærra vægi greina í atvinnumynstrinu sem eru árstíðabundnar svo sem sjávarútvegs, landbúnaðar og ferðaþjónustu. Þá er jafnara framboð af atvinnu á höfuðborgarsvæðinu árið um kring þegar litið er framhjá áhrifum viðskiptasveiflunnar. Það tengist meiri fjölbreytni menntastofnana og aukinni nýsköpun í iðnaði og þjónustu síðan Ísland gerðist aðili að EES samningnum.