Breytingar á vinnumarkaði
Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum vinnumarkaði frá innleiðingu EES samningsins. Hlutfall einyrkja fer lækkandi eftir að hafa hækkað á árum stöðnunar fyrir síðustu uppsveiflu.
Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum vinnumarkaði frá innleiðingu EES samningsins. Hlutfall einyrkja fer lækkandi eftir að hafa hækkað á árum stöðnunar fyrir síðustu uppsveiflu. Jafnframt hefur tilflutningur vinnuafls á höfuðborgarsvæðið líklega ýtt undir þá þróun. Þá má benda á að sú þróun er í samræmi við alþjóðlega þróun en hlutfall einyrkja annars staðar á Norðurlöndunum er komið í um 9% og 7% í Bandaríkjunum en er mun hærra í suðlægari ríkjum ESB. Þá hefur hlutfall starfsmanna hins opinbera lækkað vegna sölu ríkisfyrirtækja á undanförnum árum. Hlutfall starfsmanna fyrirtækja og stofnana á almennum markaði hefur því farið vaxandi og er nú tæp 65%.