Fjárfesting í alþjóðlegum samanburði
Fjárfesting atvinnuvega á Íslandi sem hlutfall af landsframleiðslu er nálægt meðaltali OECD ríkja tímabilið 1996 til 2003. Þá er talin með stóriðjufjárfesting í upphafi tímabilsins. Fjárfesting hins opinbera er hins vegar mest á Íslandi af OECD ríkjunnum. Á komandi árum mun fjárfesting atvinnuvega aukast með stóriðjufjárfestingum (sjá töflu um Þjóðhagsyfirlit) og því er mikilvægt að hið opinbera dragi úr sínum útgjöldum á næstu árum til að hafa sveiflujafnandi áhrif. Annars er viðbúið að önnur fjárfesting atvinnuveganna dragist þeim mun meira saman á komandi árum sem myndi skaða uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs í landinu.