Fjárfesting í iðnaði eftir grein
Stóriðjufjárfesting var áberandi hluti af fjárfestingu iðnaðar í síðustu uppsveiflu. Hin seinni ár var minna um slíkt og fjárfesting í stóriðju og málmiðnaði með minnsta móti. Viðbúið er að fjárfesting í hefðbundnum málm- og skipaiðnaði verði áfram lítil á komandi ári og aukist ekki að ráði fyrr en virkjanaframkvæmdir eru komnar vel á veg.
Fjárfesting í mannvirkjagerð hefur verið áberandi stór hluti af fjárfestingu iðnaðar allt tímabilið og ekki er útlit fyrir breytingu á því á næstu missirum. UT-iðnaður og annar iðnaður eru að sækja í sig veðrið eftir samdrátt síðustu ára en útlit er fyrir áframhaldandi samdrátt í fjárfestingum í matvælaiðnaði.