Gengisþróun og útflutningur
Þótt iðnaður skapi aukinn hluta af gjaldeyristekjum þjóðarinnar hefur gengi íslensku krónunnar mikil áhrif á samkeppnisgreinarnar. Meðfylgjandi mynd sýnir að útflutningur annarrar iðnvöru er háður gengi krónunnar. Eftir að krónan veiktist tók útflutningur annarrar iðnvöru kipp. Frá því að gengi krónunnar tók að styrkjast hefur þróunin hins vegar snúist við og útflutningur er byrjaður að dragast saman. Þá má merkja sams konar áhrif gengisins á útflutning á áli og kísiljárni.