Hagvöxtur

Áform um fjárfestingar í stóriðju hafa aukið bjartsýni eftir djúpa niðursveiflu í þjóðarútgjöldum, vegna samdráttar í fjárfestingum og einkaneyslu. Einkaneysla og fjárfesting hafa aukist hratt aftur og þjóðarútgjöld með. Samt er ljóst að hátt gengi krónunnar, ásamt samdrætti í útflutningi sjávarafurða, hefur leitt til þess að spáð er að útflutningur staðni árið 2003. Á sama tíma hefur innflutningur aukist hratt, m.a. vegna fjárfestingarvöru. Þá er viðbúið, miðað við reynslu fyrri ára, að vöxtur samneyslu verði meiri en spáð er. Hagvöxtur fer því hægt af stað en spáð er að hann aukist í takt við framkvæmdirnar. .