Hagvöxtur í alþjóðlegum samanburði

Sveiflur í sjávarfangi og fiskverði voru helsta uppspretta óstöðugleika í efnahagslífinu og starfsskilyrðum samkeppnisgreina á árum áður. Hagsveiflan á Íslandi er orðin áþekkari því sem gerist í löndunum umhverfis okkur. Uppspretta hagvaxtar er orðin fjölbreyttari. Nýsköpun í iðnaði og þjónustu hefur aukist eftir aðild landsins að EES samningnum. Hlutur stóriðju í efnahagsstarfseminni fer vaxandi en minnkar í sjávarútvegi. Nýrri uppsveiflu er spáð alþjóðlega og er hagvöxtur hérlendis líklegur að fylgja þeirri þróun.