Opinber fjármál

Opinber umsvif hafa aukist mikið undanfarin ár. Heildartekjur, að meginhluta skattatekjur, hafa aukist stððugt undanfarin ár og eru nú 42% af landsframleiðslu. Helstu skattstofnar eru tekjur einstaklinga og fyrirtækja og neysla og aðföng sem bera virðisaukaskatt. Útgjöld hafa haldist mikil og eru jafnan umfram það sem ráðgert er í fjárlögum hvers árs. Afgangur varð í opinberum fjármálum í síðustu uppsveiflu og þá grynnkaði á skuldum ríkissjóðs.

Ör hækkun tekna um aldamótin skýrist af því að skattleysismörk lækkuðu með því að fylgja verðlagi en ekki launaþróun og tekjum ríkissjóðs af sölu eigna. Hin síðari ár hefur verið halli. Stefnt er að afgangi í fjárlagafrumvarpi 2004.