Opinber umsvif í alþjóðlegum samanburði

Öra aukningu opinberra umsvifa á Íslandi má rekja beint til ört vaxandi samneyslu. Stærstur hluti þeirrar aukningar er vegna launahækkana opinberra starfsmanna undanfarin ár. Fjárfestingar hins opinbera eru einnig fyrirferðarmiklar og hafa verið um 4% af landsframleiðslu í mörg ár. Aðeins í Svíþjóð er hærra hlutfalli af landsframleiðslunni nú varið til þessara mála meðal OECD ríkjanna. Vel þekkt er að mikil samneysla og opinber fjárfesting hafa ,,ruðningsáhrif" með því að leiða til hærri vaxta sem dregur úr fjárfestingum og starfsemi einkaaðila. Jafnframt dregur slíkt úr sjálfbærum hagvexti til lengri tíma litið með því að auka skattbyrðina.