Raungengi og erlend viðskipti
Miklar sveiflur í raungengi krónunnar hafa gífurleg áhrif á þróun erlendra viðskipta. Raungengið setur verð eða laun okkar og erlendis í sömu mynt, sem gerir samanburð mögulegan. Hátt raungengi hefur þau áhrif að gera samkeppnisstöðu fyrirtækja okkar á alþjóðlegum markaði lakari en eykur um leið kaupmátt þjóðarinnar erlendis. Háu raungengi fylgir því halli á erlendum viðskiptum. Að meðaltali er raungengið of hátt sem skýrir af hverju þjóðarbúið er oftast með töluverðan viðskiptahalla. Það sést best á því að jafnvel þegar raungengið lækkar mikið verður afgangurinn ekki samsvarandi mikill. Nú stefnir í að hágengi verði viðvarandi næstu missiri, sérstaklega ef vextir hækka mikið vegna verðbólguþrýstings. Þá er viðbúið að hallinn á erlendum viðskiptum verði aftur mjög mikill. Það getur skapað óstöðugleika.