Skipting starfa eftir atvinnugrein
Í iðnaði er að finna eitt af hverjum fimm störfum í þjóðfélaginu. Til samanburðar má nefna að störf í iðnaði eru fimm sinnum fleirri en í landbúnaði, fjórum sinnum fleirri en í samgöngum eða opinberri stjórnsýslu, þrisvar sinnum fleirri en í sjávarútvegi og fleiri en í fjármála- og annarri þjónustu eða verslun, veitingum og hótelrekstri.
Störf í iðnaði eru afar fjölbreytt. Starfsmenn í iðnaði er að finna í fyrirtækjum í stóriðju, lyfjaþróun, verktakastarfsemi, hugbúnaðargerð, lækningatækjaframleiðslu, plastvöruframleiðslu, snyrtiþjónustu, byggingariðnaði, matvæla-, drykkjar- og sælgætisframleiðslu, úr- og gullsmíði, húsgagnaframleiðslu, framleiðslu tölvustýrðra framleiðslutækja, veiðarfæragerð, málm- og skipasmíðum, málningarframleiðslu og í prentverki.