Skipting útflutningstekna
Hlutdeild iðnaðar í útflutningstekjum þjóðarinnar hefur nær tvöfaldast á undanförnum tíu árum og er nú rúmur fimmtungur. Hlutdeild stóriðjuútflutnings hefur aukist um fimm prósentustig en hátæknigreinar um fjögur prósentustig með glæsilegum árangri í útflutningi á lyfjum, lækningatækjum, hugbúnaðargerð og -ráðgjöf. Með stóriðjuframkvæmdum á komandi árum er fyrirséð að iðnaður verður ein af þremur stoðum í útflutningi til jafns við sjávarútveg og ferðaþjónustu.
Samgöngur og ferðalög skila nú tæpum fjórðungi útflutningstekna, sem endurspeglar sókn erlendra ferðamanna til landsins og vaxandi starfsemi flug- og skipafélaga. Hlutur sjávarútvegs hefur hins vegar stöðugt farið lækkandi. Árið 1993 skilaði sjávarútvegur 53% útflutningstekna en hlutfallið var orðið tæp 40% árið 2002. Árið 2003 lækkar hlutfall sjávarútvegs enn frekar og verður rúmur þriðjungur heildarútflutningstekna þjóðarinnar. Að hluta til er skýringuna að finna í minni afla og lækkuðu verði sjávarafurða sem nú er nálægt sögulegu meðaltali.