Skipting veltu í iðnaði eftir grein
Iðnaður hefur verið í örri þróun undanfarin ár. Hátæknigreinar eins og lyfja- og lækningatækjaiðnaður og UT iðnaður hafa verið í mikilli sókn. Hlutdeild þeirra hefur aukist úr um 13% í 20% sem er mjög jákvæð þróun en slíkar greinar skapa mikil verðmæti og þar með vel launuð störf. Aðrar greinar iðnaðar hafa hins vegar aðeins látið undan síga á móti. Samdrátturinn kom hart niður á málm- og skipasmíðaiðnaði og byggingariðnaði. Þar hefur verið mikil umbreyting á undanförnum árum. Framtíðin er samt björt í þeim greinum en miklar fjárfestingar í stóriðju ættu að skapa þeim mörg tækifæri.