Skuldir þjóðarbúsins

Skuldir þjóðarbúsins hafa vaxið hröðum skrefum undanfarin ár, með auknum viðskiptahalla og framkvæmdum. Áberandi er mikil skuldaaukning fyrirtækja og heimila árið 2003. Varasamt er að fara inn í uppsveiflu með miklar skuldir en hækkun vaxta og verðbætur geta þyngt skuldabyrðina til muna. Miklar skuldir vega að rótum fjármálastöðugleikans ef gengið fellur mikið og tekjur dragast saman. Því er þörf á samræmdri hagstjórn á komandi árum sem byggist á þátttöku hins opinbera í að draga úr spennu í hagkerfinu með virku aðhaldi.