Stöðugleiki á Íslandi

Stöðugleiki verðlagsins er helsta markmið hagstjórnar. Hér á landi hefur reynst erfitt að ná stöðugleika í rekstraumhverfi fyrirtækja, bæði hvað varðar innlenda verð- og launaþróun og gengið. Á komandi árum mun reyna mikið á stjórnvöld að viðhalda stöðugleika. Áríðandi er að hið opinbera komi í ríkari mæli að hagstjórninni til að draga úr ofþenslu. Að öðrum kosti þarf Seðlabankinn að hækka vexti meira og fyrr en ella, sem styrkir gengið. Slík þróun, ef hún gengur of langt, getur kallað fram sársaukafulla aðlögun til lægra gengis og samdrátt í innlendri eftirspurn. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Gæta þarf ýtrasta aðhalds í opinberum fjármálum á komandi árum.