Þjóðhagsyfirlit
Uppsveifla hófst árið 2003 með auknum þjóðarútgjöldum og vaxandi misvægi í erlendum viðskiptum tengdu háu gengi krónunnar. Hagvöxtur jókst árið 2004 með stórauknum fjárfestingum í stóriðju. Mikið innflæði fjármagns tengt framkvæmdum og aukinni neyslu hefur leitt til ört vaxandi viðskiptahalla. Afkomubati í rekstri hins opinbera, sem felst í að tekjuhalla árið 2003 var snúið í afgang árið 2004, dró úr innlendri eftirspurn og þenslu árið 2004. Svipaðri þróun er spáð árin 2005 og 2006 utan að afkomubati árið 2006 hverfur, sem bendir til að slaki myndist í hagstjórn hins opinbera á hátindi þensluskeiðsins.
Milljarðar króna á verðlagi hvers árs | ||||
Áætlun | Spá | Spá | ||
2003 | 2004 | 2005 | 2006 | |
Einkaneysla | 450 | 496 | 542 | 592 |
Samneysla | 214 | 226 | 240 | 254 |
Fjármunamyndun | 172 | 208 | 255 | 292 |
Stóriðjufjárfesting* | 3 | 49 | 80 | 104 |
Atvinnuvegafjárfesting, önnur | 94 | 81 | 91 | 101 |
Fjárfesting í íbúðarhúsnæði | 45 | 53 | 58 | 62 |
Fjárfesting hins opinbera | 30 | 25 | 25 | 26 |
Þjóðarútgjöld | 834 | 930 | 1.037 | 1.138 |
Útflutningur vöru og þjónustu | 288 | 305 | 330 | 359 |
Innflutningur vöru og þjónustu | 312 | 358 | 411 | 463 |
Verg landsframleiðsla | 811 | 876 | 955 | 1.035 |
Vöru- og þjónustujöfnuður | -24 | -53 | -82 | -103 |
Jöfnuður þáttatekna | -8 | -11 | -22 | -37 |
Viðskiptajöfnuður | -32 | -64 | -104 | -140 |
Tekjur hins opinbera | 373 | 400 | 429 | 450 |
Gjöld hins opinbera | 387 | 396 | 414 | 434 |
Tekjujöfnuður hins opinbera | -13 | 4 | 15 | 16 |
Heimild: Fjármálaráðuneytið | ||||