Þróun veltu í iðnaði

Velta í iðnaði, leiðrétt fyrir verðbreytingar og árstíðarsveiflur, hefur verið æði breytileg undanfarin ár og fylgt þróun innlendrar eftirspurnar. Uppsveifla í byggingariðnaði og jarðvinnustarfsemi í lok síðasta áratugar snerist í mikla niðursveiflu árin 2001 og 2002. Uppsveifla hófst á ný árið 2003. Hátæknigreinar hafa vaxið mikið undanfarin missiri, aðallega, starfsemi lyfja- og lækningatækjaframleiðenda. Nú er uppsveifla greinileg þar og í matar- og drykkjariðnaði. Gangurinn í málm- og skipasmíðum og ýmsum öðrum iðnaði hefur verið aðeins hægari en þó eru batamerki greinileg einnig í þeim greinum.