Þróun viðskiptajöfnuðar

Hækkandi raungengi krónunnar frá árinu 2002 hefur leitt til þess að afgangur í vöru- og þjónustuviðskiptum snerist í halla árið 2003. Vegna mikilla erlendra skulda greiða Íslendingar mun meiri vexti erlendis en nemur sambærilegum tekjum af eignum okkar erlendis. Þó fáum við meira greitt af launum erlendis frá, m.a. tengt starfsemi Varnarliðsins, en það sem við greiðum til erlendra aðila. Nú eru flestir þættir erlendra viðskipta í halla og allt útlit fyrir að hann aukist til muna á komandi árum vegna hærri vaxta erlendis og innflutnings tengdum stóriðjuframkvæmdum og aukinni neyslu.