Vöxtur hins opinbera

Vöxtur hins opinbera hefur verið ör undanfarna áratugi. Samneysla sem hlutfall af landsframleiðslunni er nú hæst innan OECD ríkjanna og sennilega í heiminum. Sú þróun bendir til að starfsemi hins opinbera sé í stjórnlausum vexti. Að hluta til má rekja nýlega aukningu til hærri verða í opinberri þjónustu. Ef þessi þróun heldur áfram mun skattbyrðin aukast verulega á komandi árum.