• Tordur_200

Evrópusambandið ekki valkostur - heldur nauðsyn

Þórður Magnússon á Iðnþingi 2009

Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrir Invest, sagði á Iðnþingi í dag að aðild okkar að Evrópusambandinu væri ekki valkostur heldur brýn nauðsyn.

Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrir Invest, sagði á Iðnþingi í dag að aðild okkar að Evrópusambandinu væri ekki valkostur heldur brýn nauðsyn. „Aðkoma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að stjórn efnahagsmála á Íslandi hefur aukið traust á okkur en það sama myndi gerast með aðildarumsókn okkar að Evrópusambandinu. Við eigum mikið undir því að öðlast traust á alþjóðavettvangi,“ sagði Þórður og bætti við að óbreytt ástand gengi ekki til lengdar: „Án aðildar munu fyrirtækin okkar ekki geta vaxið nema flytja höfuðstöðvar til útlanda. Einhliða upptaka evru er heldur ekki valkostur.“

Þórður lagði þunga áherslu á að bætt lífskjör þjóðarinnar héldust í hendur við árangur okkar í alþjóðavæðingu og frekari útflutningi. „Mælikvarði á árangur er aukning útflutningsverðmæta fremur en vöxtur í landsframleiðslu. Það eykur getu okkar til að greiða niður erlendar skuldir og auka velmegun,“ sagði Þórður.

Erindi Þórðar Magnússonar (PDF snið)