Hugverkasvið SI
Á hugverkasviði Samtaka iðnaðarins starfa sérfræðingar sem þekkja vel tækni- og nýsköpunarumhverfið og fylgjast vel með því sem gerist á þeim vettvangi. Það bætist stöðugt í hóp fyrirtækja á þessu sviði enda löngu orðið ljóst mikilvægi þess að nýta hugvit í öllum atvinnugreinum til að auka verðamætasköpun og gæði.
Tækni- og hugverkafyrirtæki sem oft er flokkaður sem annar iðnaður afla í dag um 22% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Lausnir tækni- og hugverkaiðnaðarins eru til hagsbóta í öllum atvinnugreinum og auka verðmætasköpun og gæði.
Tækni- og hugverkaþing SI 2017 var haldið í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík. Hér er hægt að nálgast efni þingsins.
Tækni- og hugverkaþing SI 2019 var haldið í Norðurljósum í Hörpu. Hér er hægt að nálgast efni þingsins.
Hugverkráð SI
Í Hugverkaráði SI sitja sex fulltrúar ásamt sex varafulltrúum og er markmið ráðsins að efla samkeppnishæfni hugverka- og hátæknifyrirtækja á Íslandi. Hugverkaráð SI var upphaflega sett á laggirnar þann 4. mars 2016. Hlutverk ráðsins felst aðallega í því að styrkja þau málefni sem eru sameiginleg fyrirtækjum sem starfa á alþjóðamörkuðum og byggja afurðir sínar og þjónustu á tækni og hugverki.