Viðburðir
Félagsfundur FRV
Stjórn FRV boðar til félagsfundar þriðjudaginn 25. september nk., kl. 8.30, í fundarherberginu Veröld, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 4. hæð.
Stjórn mun fara yfir áherslumál starfsársins og eiga samtal við félagsmenn um störf félagsins.
Þá verður jafnframt farið yfir ýmis atriði er varða aðild að FRV, SI og SA og þá þjónustu sem félagsmenn geta sótt til samtakanna.
Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 8.15.