Viðburðir
29.10.2021 kl. 15:00 - 20:00 Gróska í Vatnsmýri

Samtal um hönnun og hönnunarverðlaun

Hönnunarverðlaun Íslands 2021 og Samtal um hönnun fara fram í Grósku föstudaginn 29. október kl. 15.00-20.00. Tilnefningar til verðlaunanna eru fimm talsins: 1. Fatalína fatahönnuðarins Magneu Einarsdóttur, MAGNEA - made in reykjavík. 2. Ásýnd „Hjaltalín - ∞“ eftir grafíska hönnuðinn Sigurð Oddsson, myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann. 3. Söluhús við Ægisgarð eftir Yrki arkitekta. 4. Konur sem kjósa eftir Snæfríði Þorsteins, Hildigunni Gunnarsdóttur og Agnar Frey Stefánsson. Hönnunarverkefnið Þykjó eftir hönnuðina Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Ninnu Þórarinsdóttur, Sigurbjörgu Stefánsdóttir og Erlu Ólafsdóttur.

Dagskrá dagsins er eftirfarandi:

Samtal um hönnun

15:00 - 15:30 Húsið opnar - Síðdegishressing

15:30 - 16:30 Snörp myndræn erindi um tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2021

16:40 - 17:30 Pallborðsumræður um stöðu hönnunar á Íslandi í dag

Hönnunarverðlaun Íslands 2021

17:30 - 18:00 Fordrykkur

18:00 - 19:00 Afhending: Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2021

19:00 - 20:00 Skál

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.