Samningur við verktaka - mikilvæg atriði

Stofa1

Með því að gera verksamning milli þín og verktaka ert þú að fyrirbyggja ágreining, meðal annars tengt uppgjöri, hvað vinna skal, hugsanleg aukaverk og fleira sem getur komið upp.

Að fá meistara og fagfólk með tilskilin réttindi til starfa er ákveðin trygging fyrir færni, menntun, þekkingu og réttum vinnubrögðum. Með því að kynna sér neðangreindar upplýsingar er mögulega hægt að koma í veg fyrir kostnaðarsamt tjón ef vinna þarf verkið upp á nýtt enda getur fagfólk skipt sköpum í því hver útkoman verður.

Sýnishorn af verksamningi fyrir minni verk - hægt að nota fyrir flest einföld verk (handskrifanleg útgáfa).   

Sýnishorn af verksamningi fyrir stærri verk - umfangsmeiri verk þar sem oft er miðað við yfir 5 milljónir króna (handskrifanleg útgáfa).

Gátlisti yfir hvað er gott að hafa í huga við gerð verksamnings

  • Gátlisti verkkaupa vegna byggingaframkvæmda.
  • Leiðbeiningar með gátlista.
  • Stutt verklýsing til að skilgreina verkið sem verktaki á að vinna.
  • Hvað kostar verkið? Er þetta tilboðsverð eða tímavinna? T.d. ef um er að ræða tímavinna þá er mikilvægt að tilgreina vinnutíma í samningi.
  • Aukaverk – Oft breytist umfang verks eftir að verksamningur er gerður þá er mikilvægt að báðir aðilar samþykki þær breytingar á sérstöku eyðublaði. Sýnishorn af samningi um aukaverk.

Annað sem getur verið gott að hafa í huga

Það sem þú sem verkkaupi ættir að ganga úr skugga um og spyrja meistara um:

Frekari upplýsingar

  • Hér er hægt að nálgast greina- og hljóðglærusafn SI er varðar mannvirkjagerð.

  • Á vef SART er hægt að taka rafmagnsprófið. Neytendur geta tekið rafmagnspróf ef þeir hafa grun um að ekki sé allt eins og best verður á kosið í rafmagnsmálum á heimilinu eða á vinnustað.