21. ágú. 2017 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Kallað eftir tilnefningum fyrir umhverfisverðlaun atvinnulífsins

Óskað er eftir tilnefningum fyrir umhverfisverðlaun atvinnulífsins þar sem þau fyrirtæki sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum eru verðlaunuð. Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 12. september næstkomandi en verðlaunin verða afhent mánuði síðar eða fimmtudaginn 12. október á Hilton Reykjavík Nordica á Umhverfisdegi atvinnulífsins, sem að þessu sinni er helgaður loftslagsmálum.

Tilnefningar er hægt að senda með tölvupósti á netfangið sa@sa.is merkt: „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.

Veitt verða tvenn verðlaun: Umhverfisfyrirtæki ársins og Framtak ársins. Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti: 

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur komið fram með nýjung – nýja vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif
  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Gagnast í baráttu við loftslagsbreytingar

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.