Nemendur í rafiðngreinum fá gefins spjaldtölvur fyrir námið
Fulltrúar Samtaka rafverktaka, SART, og Rafiðnaðarsambands Íslands afhentu fyrir skömmu nýnemum í rafiðngreinum í Verkmenntaskólanum á Akureyri spjaldtölvur. Spjaldtölvurnar munu nemendurnir nota við námið en samtök rafiðnaðarmanna hafa um langt skeið unnið að gerð námsefnis á rafrænu formi sem nemendur geta notað gjaldfrjálst í gegnum allt námið. Mikil ánægja er á meðal nemenda með spjaldtölvurnar og ljóst að gjöfin kemur sér vel fyrir þá. Það er einnig verðmætt fyrir nemendur að geta notað gjaldfrjálst efni við námið. Áhugasamir geta fengið aðgang að vefnum inni á www.rafbok.is
Á næstu dögum og vikum verður haldið áfram að dreifa spjaldtölvum til nýnema í öðrum skólum á landinu þar sem rafiðnnám er kennt.


