Umhverfisdagur atvinnulífsins helgaður loftslagsmálum
Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn fimmtudaginn 12. október á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-12. Dagurinn er að þessu sinni helgaður loftslagsmálum. Skráning fer fram á vef SA. Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.
Dagskrá
8.30-10.00 ATVINNULÍFIÐ OG LOFTSLAGSMÁL
- Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
- Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
- Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hvað eru fyrirtækin að gera?
- Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Eimskip.
- Svavar Svavarsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá HB Granda
- Hrefna Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Elkem Ísland.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2017.
Umhverfisfyrirtæki ársins útnefnt og framtak ársins á sviði loftslagsmála verðlaunað.
Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF, stýrir dagskránni.
10-10.30 Kaffi og með því
10.30 – 12.00 MÁLSTOFUR SAMTAKA Í ATVINNULÍFINU
A) Ábyrgar fjárfestingar, nýsköpun og loftslagsmál
B) Orkuskipti og orkunýting

