Valmynd
7. maí 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk
Skráning stendur yfir á ársfund Samáls sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag 9. maí kl. 8.30-10.00 í Kaldalóni í Hörpu. Yfirskrift fundarins er Álið er hluti af lausninni. Á fundinum verður horft til framtíðar og umhverfis- og öryggismál verða í brennidepli. Um leið verður þess minnst að hálf öld er liðin frá því álframleiðsla hófst á Íslandi. Fundarstjóri er Sólveig Bergmann.
Dagskrá
8:00 - Morgunverður. 8:30 - Ársfundur.
10:00 - Kaffispjall að loknum fundi.
Fundargestum gefst kostur á að skoða nýjan rafbíl úr frumframleiddu og endurunnu áli, Jaguar I-Pace. Þá gefst kostur á að spreyta sig á öryggisþjálfun í sýndarveruleika í boði Statnett.
Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffispall og veitingar.
Aðgangur er öllum opinn. Á vef Samáls er hægt að skrá sig.