Fréttasafn



3. maí 2018 Almennar fréttir Menntun

750 stelpur kynna sér tækninám og tæknistörf

Um 750 stelpur úr 9. bekk grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu heimsóttu Háskólann í Reykjavík og fjölmörg tæknifyrirtæki í dag. Viðburðurinn Stelpur og tækni sem var haldinn í fimmta sinn hefur farið stækkandi ár frá ári og var nú fjölmennari en nokkru sinni fyrr. Tilgangurinn með Stelpum og tækni er að kynna möguleika í tækninámi  og tæknistörfum fyrir stelpum í 9. bekk grunnskóla, kynna þær fyrir fyrirmyndum í tækni og opna augu þeirra fyrir framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar bjóða. Dagurinn er haldinn af Háskólanum í Reykjavík í samvinnu við Samtök iðnaðarins, SKÝ og LS Retail. 

Kynnast meðal annars forritun og gerð vefsíðna

Stelpurnar taka þátt í fjölbreyttum vinnusmiðjum í HR í umsjá /sys/tra, félags kvenna í tölvunarfræði við HR, tæknifyrirtækja og kennara tölvunarfræðideildar og tækni- og verkfræðideildar. Viðfangsefnin eru af ólíkum toga, til dæmis kynnast þær forritun og gerð vefsíðu, vefhönnun, uppbyggingu tölvuleikja, þrívíddarprentun líffæra og brotaþoli beina.

28 tæknifyrirtæki taka á móti stelpunum

Eftir að vinnustofunum lýkur heimsækja stelpurnar fjölbreytt tæknifyrirtæki þar sem konur sem starfa hjá fyrirtækjunum gefa stelpunum innsýn í starfsemina og þau tækifæri sem stelpum bjóðast á vinnumarkaði að loknu tækninámi. Þau fyrirtæki sem taka þátt í ár eru: LS Retail, Marel, Eimskip, Landsnet, Landsvirkjun, Arion banki, Opin Kerfi, Meniga, Valitor, Orkuveita Reykjavíkur, Össur, Íslandsbanki, Landsbankinn, RB, Syndis, Tækniskólinn, Myrkur, Advania, Kolibri, Síminn, Wise, Sensa, Microsoft,  Nova, Efla, Origo, Tempo og Vodafone.

Stelpur og tækni líka á Akureyri

Sambærilegur viðburður verður haldinn á Akureyri 15. maí næstkomandi fyrir stelpur í grunnskóla á Norðurlandi, í samstarfi við Háskólann á Akureyri og stefnt er að því að gefa stelpum annars staðar á landinu tækifæri til að taka þátt næsta haust.

Viðburður sem er haldinn víða um heim

Dagurinn er haldinn að fyrirmynd Girls in ICT Day sem haldinn er víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir sem teknar voru í dag.

2018_0503_11081600-01

2018_0503_11085600-01

2018_0503_11111700-01

2018_0503_11115900-01

2018_0503_11300600-01

2018_0503_11414100-01

2018_0503_12135100-01