Fréttasafn



26. júl. 2017 Almennar fréttir Mannvirki

Byggingarfulltrúi Reykjavíkur vísar gagnrýni á bug

Í frétt Stöðvar 2 er sagt frá því að byggingarfulltrúi Reykjavíkur, Nikulás Úlfur Másson, vísi á bug gagnrýni formanns Samtaka iðnaðarins, verktaka og arkitekta um að þjónusta embættisins sé slök og tefji fyrir framkvæmdum og að honum finnst óvægið að ráðist sé svona að starfsmönnum embættisins sem þurfi að vinna eftir lögum og reglum sem settar eru. Þar vísar byggingarfulltrúinn meðal annars í það sem formaður SI sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að flækjustig í afgreiðslu umsókna til sveitarfélaga og ríkisins vegna framkvæmda hafa aukist mikið á síðustu mánuðum og sé sínu verst í Reykjavík en svipaða sögu sé að segja af öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. 

„Í þessu viðtali sem þú vísar til að þar er talað um að það sé mjög mikið af kvörtunum frá öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu þannig að kannski væri rétt að líta í eigin rann og sjá hvers kyns kvartanir þetta eru,“ segir Nikulás við fréttamanninn Jóhann K. Jóhannsson. Nikulás segir það hag embættisins að afgreiða umsóknir, til dæmis vegna byggingarleyfa, hratt og vel en mörg embætti koma að afgreiðslu umsókna. „Öll eru þessi embætti að vinna samkvæmt lögum og reglum sem þeim ber að framfylgja og þau fara yfir teikningar sem hingað berast og gera við það athugasemdir ef að þurfa þykir.“ Hann segir mikla þenslu í framkvæmdum í Reykjavík og mikið að umsóknum hafi borist að undanförnu. „Okkur hefur fundist upp á síðkastið að gæði gagna sem hingað berast eru að minnka,“ segir Nikulás meðal annars í viðtalinu. 

Nánar á Vísi.