Fundur um Tækniþróunarsjóð
Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 15. ágúst næstkomandi kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Kviku á 1. hæð. Boðið verður upp á léttan morgunverð. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.
Dagskrá
Sigurður Björnsson, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, gerir grein fyrir:
- Styrkjaflokkum Tækniþróunarsjóðs
- Skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
- Reglugerð um skattaívilnun til erlendra sérfræðinga
Reynsla félagsmanna SI af umsóknaferli Tækniþróunarsjóðs
- Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri, eTactica
- Jón Atli Magnússon, vöruþróunarstjóri, Hampiðjunni
