Fréttasafn



12. jan. 2015 Iðnaður og hugverk

Íslenskir fagfjárfestar bætast í hóp hluthafa Verne Global

Verne Global hefur lokið við hlutafjáraukningu fyrir allt að 98 milljónir bandaríkjadala. SÍA II, framtakssjóður í rekstri Stefnis, kemur ásamt hópi lífeyrissjóða, nýr inn í hluthafahóp félagsins. Stærstu hluthafar Verne Global fyrir hlutafjáraukninguna – Wellcome Trust, Novator Partners og General Catalyst, tóku einnig þátt í hækkuninni.

Verne Global mun nota hið nýja hlutafé til að auka afkastagetu gagnaversins og útvíkka þjónustuframboð.  Fjármögnunin gerir það að verkum að Verne Global getur ráðist í nauðsynlegar fjárfestingar til að mæta vaxandi eftirspurn frá núverandi og nýjum viðskiptavinum.

“Hið mikla magn nýrra gagna sem verða til og eru unnin á hverjum degi leiðir til þess að markaðurinn hefur endurmetið þörf sína fyrir gagnavörslu, gagnavinnslu og hvar þessi þjónusta fer fram,” segir Jeff Monroe, forstjóri Verne Global. “Til að ná árangri í hagkerfi sem er drifið áfram af gögnum og vinnslu upplýsinga skiptir aðgangur að orku, áreiðanleiki hennar og kostnaður miklu máli. Allir þessir þættir eru hagstæðir á Íslandi sem gerir það að verkum að við teljum Ísland vera ákjósanlegan og hagfelldan stað til að staðsetja gagnaversþjónustu fyrir alþjóðleg fyrirtæki.”                                         

“Við erum ánægðir með að koma inn í hluthafahóp Verne Global og styðja áframhaldandi vöxt fyrirtækisins og þróun gagnaversiðnaðar á Íslandi, segir Arnar Ragnarsson sjóðstjóri hjá SÍA II. “Verne Global hefur á að skipa öflugu  starfsfólki og býður viðskiptavinum sínum upp á samkeppnishæfa vöru. Við teljum allar forsendur vera fyrir hendi til að byggja á þeim árangri sem fyrirtækið hefur náð enda fer þörfin eftir þjónustu þess vaxandi sem og  vægi þeirrar sérstöðu Verne Global sem felst í staðsetningu þess á Íslandi. ”

“Það er ánægjulegt að fá SÍA II og lífeyrissjóði í hluthafahóp Verne Global. Við höfum sýnt fram á það með samstarfi við stóra alþjóðlega viðskiptavini að Ísland er ákjósanlegur staður fyrir gagnaver og það er spennandi fyrir okkur að fá breiðan hóp íslenskra fjárfesta að fyrirtækinu til að taka þátt í uppbyggingu þess,” segir Isaac Kato, fjármálastjóri Verne Global.

Arctica Finance var ráðgjafi Verne Global við fjármögnunina. 

Um Verne Global

Verne Global er framsækið fyrirtæki í þróun orkunýtinna gagnavera á svæði félagsins að Ásbrú í Reykjanesbæ. Félagið býður viðskiptavinum sínum öruggar og skalanlegar gagnaverslausnir sem fela í sér mikið kostnaðarhagræði og nýta hreina endurnýtanlega orkukosti Íslands. Viðskiptavinir fyrirtækisins hafa ólíkar þarfir en hafa kosið að staðsetja ákveðna þætti í upplýsingatæknivinnslu sinna fyrirtækja hjá Verne á Íslandi, en meðal stærstu viðskiptavina eru stór alþjóðleg fyrirtæki eins og BMW, RMS, Datapipe, Colt og CCP. www.verneglobal.com