Fréttasafn



7. nóv. 2019 Almennar fréttir Nýsköpun

Kynningarfundur um fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja

Rannís og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa fyrir opnum kynningarfundi um Eurostars-2, möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda sjálf rannsóknir og þróun. Á fundinum sem verður miðvikudaginn 27. nóvember kl. 9-10.30 hjá Rannís í Borgartúni 30 verður einnig sagt frá þjónustu Enterprise Europe Network við sprotafyrirtæki.

Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum Eurostars verkefna. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar 2020. Tækniþróunarsjóður heyrir undir atvinnuvega og nýsköpunarráðherra og mun koma að fjármögnun þeirra verkefna sem fá brautargengi hjá Eurostars.

Fundurinn er öllum opinn en skrá þarf þátttöku hér.