Fréttasafn



21. jún. 2017 Almennar fréttir Mannvirki

Launþegum fjölgar mest í byggingariðnaði

Í apríl voru 11.500 launþegar í byggingarstarfsemi og hafði launþegum fjölgað um 16% samanborið við sama tíma í fyrra. Launagreiðendur voru 2.478. Á 12 mánaða tímabili voru að meðaltali 182.800 einstaklingum greidd laun sem er aukning um 8.500 einstaklinga eða um 4,9% samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr. 

Á 12 mánaða tímabili, frá maí 2016 til apríl 2017, voru að jafnaði 17.079 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 790 (4,8%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu en launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi.

Nánar á vef Hagstofunnar.