Fréttasafn



  • vaxtarsprotinn

19. mar. 2010

Tilnefningar til Vaxtarsprota ársins

Vaxtarsprotinn, er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins/SSP, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknamiðstöðvar Íslands um val á vaxtarsprota ársins.

Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukin áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.  

Skipulag og dómnefnd

Eins og áður skipa aðstandendur verkefnisins 3 manna dómnefnd sem sér um skipulag, kynningu og val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningar og nafnbótina “Vaxtarsproti ársins”.  

Tilnefningar:

Hver sem er getur tilnefnt fyrirtæki sem hann telur eigi erindi í þetta val.   Í forvali þarf aðeins að senda inn eftirfarandi lykiltölur úr rekstri: 

  • Veltutölur síðustu tveggja ára
  • Heildartölur fyrir rannsókna- og þróunarkostnað fyrirtækisins fyrir sömu ár

 Ef fram kemur eftir forval að fyrirtækið komi til greina sem “Vaxtarsproti ársins” þarf fyrirtækið að senda inn staðfestingu löggilts endurskoðanda á að innsendar lykiltölur séu réttar og að fyrirtækið uppfylli skilyrði í lið 3 í eftirfarandi viðmiðum sem dómnefnd leggur til grundavallar vali á vaxtarsprota ársins. 

Viðmið til að velja “Vaxtarsprota ársins”                  

  • Megin viðmiðið er vöxtur í veltu sem er mældur með þeim hætti:
    (
    V1 – V2)/ V2 þar sem:  V1 er velta síðasta árs, en V2 er velta ársins þar á undan
  • Þá þarf fyrirtækið að uppfylla skilgreiningu um sprotafyrirtæki – þ.e. að verja meira en 10% af veltu í rannsókna- og þróunarkostnað að meðaltali fyrir bæði árin sem tekin eru til viðmiðunar og að heildarvelta fyrra ársins (V2) sé yfir 10 milljónum og undir einum milljarði ísl. kr.
  • Þá þarf frumkvöðullinn/arnir að vera staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera að meiri hluta í eigu “stórfyrirtækis” (þ.e. fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi), fyrirtækis í aðallista kauphallar eða vera sjálft á aðallista kauphallar.

 Viðurkenningar:

Það fyrirtæki sem tilnefnt er og sýnir mestan hlutfallslegan vöxt samkvæmt framangreindum viðmiðum hlýtur nafnbótina “Vaxtarsproti ársins”  Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun þar sem “Vaxtarsproti” viðkomandi árs er skráður.   Þá fær fyrirtækið einnig sérstakan verðlaunaskjöld til eignar.  Þá verða einnig veittar sérstakar viðurkenningar til þeirra tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónir kr. og hins vegar sem velta á bilinu 100-1000 milljónir króna.

 Viðurkenningar veittar í lok apríl ár hvert: 

Viðurkenningar Vaxtarsprotans voru veittar í fyrsta sinn í mars 2007 í tengslum við sýninguna Tækni og vit. Það var fyrirtækið Marorka hlaut „Vaxtarsprotann 2007“ en fyrirtækin Gagarín, Stiki og Stjörnu-Oddi hlutu einnig viðurkenningu fyrir góðan vöxt á því ári.

Mentor ehf. hlaut Vaxtarsprotann 2008, en Betware hf, Kine ehf. og Valka ehf. hlutu viðurkenningar fyrir góðan vöxt.  

Mentor ehf. hlaut einnig Vaxtarsprotann árið 2009, en Naust Marine hf, Gogogic ehf og Saga Medica ehf. fengu viðurkenningu fyrir góðan vöxt á því ári.

Í ár verður efnt til viðurkenningarathafnar í lok apríl (væntanlega 30. apríl). 

Frestur til að skila tilnefningum og staðfestingum löggilts endurskoðanda

Frestur til að skila tilnefningum til forvals er til 30. mars n.k. og þau fyrirtæki sem komast í gegnum forvalið þurfa síðan að skila staðfestingum endurskoðanda um þau viðmið sem fram koma hér að framan fyrir 9. apríl n.k.