Fréttasafn



14. jún. 2010

Skýrsla um umbætur í virðiskeðju matvæla

Helstu niðurstöður verkefnisins „Umbætur í virðiskeðju matvæla“ hafa nú verið teknar saman í skýrslu og birtar á vef Matís. Verkefninu var stýrt af Samtökum iðnaðarins og unnið í samstarfi við Kaupás, Norðlenska, Sláturfélag Suðurlands, Rannsóknarsetur verslunarinnar, Matís og AGR aðgerðagreiningu. Tækniþróunarsjóður styrkti verkefnið. Í verkefninu var sjónum beint að ferli kjötvöru, sem er fremur flókin vinnsla og krefst bæði kælingar og í sumum tilfellum hitunar, í gegn um vinnsluferil og út í gegn um verslun. Niðurstöðurnar eiga engu að síður að geta nýst í öðrum greinum matvælavinnslu. Framleiðendur eru hvattir til að kynna sér efni skýrslunnar.

Lesa má skýrsluna hér.