Fréttasafn



  • Vinnuvélar

13. des. 2010

Hundruð nýrra starfa verða til

 

„Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir iðnaðinn því verkefnaskortur hefur neytt verktakafyrirtæki til að draga stórkostlega úr starfsemi sinni“, segir Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins um ákvörðun ríkisstjórnarinnar í gær.

Hundruð  starfa á næsta ári voru tryggð þegar ríkisstjórnin samþykkti á föstudag hefja framkvæmdir við fjögur stór samgönguverkefni til viðbótar við hefðbundnar framkvæmdir Vegagerðarinnar sem unnar eru samkvæmt vegaáætlun. Störfin sem skapast hlaupa á hundruðum  og má ætla að nær 500 manns þurfi til framkvæmdanna strax á næsta ári, en framkvæmdir þess árs eru áætlaðar fyrir rétt tæpa 6 miljarða króna.  Alls á að verja 40 miljörðum króna til þessara verkefna á allra næstu árum.

Verkefnin fjögur eru Suðurlandsvegur að Selfossi, Vesturlandsvegur að Hvalfjarðargöngum, Reykjanesbraut suður fyrir Straum og Vaðlaheiðargöng. Öll hafa þessi verkefni verið vegin og metin sem ábatasöm fyrir íslenskt samfélag. Traustar og öflugar samgöngur vega þungt í samkeppnishæfni þjóða og styrkir og eflir þessi ákvörðun samkeppnihæfni íslensks þjóðfélags til framtíðar. 

„Samtök iðnaðarins fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hefja þessar framkvæmdir sem eru í senn mannaflsfrekar, sem ekki veitir af, en einnig og ekki síður að þær eru arðbærar og styrkja samkeppnishæfni íslensks samfélags í framtíðinni“ segir Helgi.

Framkvæmdirnar verða fjármagnaðar með útboði sérstakra skuldabréfa sem líklegast verða tilsniðin þátttöku lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta. „Þetta er líka jákvæð innspýting inn í íslenskt efnahagslíf enda ljóst að mikil þörf er á fjárfestingu sem nú er í sögulegu lágmarki“, segir Helgi að lokum.