Fréttasafn



  • Tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík

30. mar. 2011

Íslenskar konur í nýsköpun halda fyrstu ráðstefnuna í Hörpu

KVENN – EUWIIN - GWIIN

Samtök frumkvöðlakvenna ætla að halda glæsilega alþjóðlega ráðstefnu í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu þann 25. – 26. maí næstkomandi. Þetta verður fyrsta ráðstefnan sem fram fer í Hörpu og er gert ráð fyrir að minnsta kosti 300 manns víðsvegar að úr heiminum. 

Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á uppfinninga- og frumkvöðlastarfsemi kvenna og vonast er til að það muni stuðla að betri tækifærum kvenna og auka áhugann á málefninu. Karlar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta og taka þátt og kynna sér hvað konur eru að finna upp, víðs vegar í heiminu.

Borgarstjórinn í Reykjavík mun opna ráðstefnuna með móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 24. maí. Röð fyrirlestra og pallborðsumræðna munu fara fram í Hörpu dagana 25. og 26. maí með stuttum hádegis og kaffihléum þar sem boðið verður upp á létt snarl. Ráðstefnugestir fá að njóta tónlistaratriðis í boði Hörpu í tilefni opnunar hússins.

Ráðstefnan í Hörpu verður fjölmennasta samkoma frumkvöðlakvenna í Evrópu á þessu ári. Það verða fluttir fyrirlestrar þar sem  m.a. verður fjallað um hugverkaréttindi, vöruþróun, stofnun fyrirtækja,  fjárfestingar, markaðsvæðingu og upplýsingatækni. Tölfræðin sýnir að konur fá 20% af styrkjum sem í boði eru á Íslandi og fá lægri styrk upphæðir. Konur eiga 9% af skráðum einkaleyfum í Evrópu. Konur eiga 20% af fyrirtækjum á Íslandi. Konur eiga 5-15% af tæknifyrirtækjum í Evrópu. Þessar tölur sýna að mikil þörf er á að hvetja konur áfram og að gera þær konur sýnilegar sem framkvæma hugmyndir sínar.

Þeim konum sem tilnefndar verða til viðurkenningar mun gefast kostur á að sýna og kynna verkefni  sín eða vörur  á ráðstefnunni.

Kadeco hefur boðið þátttakendum í heimsókn að kvöldi 25. maí. Þar verður gestum m.a. boðið að horfa á tískusýningu þar sem íslenskir og erlendir hönnuðir munu sýna glæsilega umhverfisvæna hönnun, undir stjórn breska hönnuðarins Adubayo Jones. Ráðstefnunni lýkur síðan með hátíðarkvöldverði í Bláa Lóninu þar sem viðurkenningar verða veittar þeim uppfinninga- og frumkvöðlakonum sem þykja hafa skarað fram úr.

Félag kvenna í nýsköpun, KVENN, var stofnað árið 2007. Þá komu saman konur sem fengust við nýsköpun á ýmsum sviðum, sumar höfðu fengið alþjóðlegar viðurkenningar og tekið þátt í Nýsköpunarkeppnum og aðrar voru búnar að stofna fyrirtæki um hugmyndir sínar. Það er íslenska tengslanetið KVENN sem ber hitann og þungann af skipulagi þingsins að þessu sinni en félagið á aðild að evrópska tengslanetinu EUWIIN og GWIIN, alþjóðlegu tengslaneti  frumkvöðlakvenna, sem teygir anga sína til Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.

Fjölmennar ráðstefnur EUWIIN, í Berlín 2007 og síðan Helsinki 2009 sýndu, svo ekki varð um villst, að mikil þörf var á tengslaneti á borð við þau sem hér um ræðir enda þykja þau hafa skapað frjóan jarðveg og vettvang fyrir skapandi og hugmyndaauðugar konur.  

Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar veitir Elinóra Inga Sigurðardóttir, formaður Félags kvenna í nýsköpun, í síma 898 4661. Netfang: elinoras@gmail.com. Upplýsingar og skráning er á http://www.kvenn.net/