Fréttasafn



  • Naglinn---Naglinn

21. nóv. 2011

Nagli.is - nýr vefur fyrir verktaka og neytendur

Nýr vefur, Nagli.is, var opnaður í síðasta mánuði. Um er að ræða vettvang fyrir iðnaðarmenn og þá sem vilja nýta sér þjónustu þeirra. Markmið Naglans er að spara báðum aðilum tíma og pening, stuðla að gegnsærri samkeppni og minnka umstang við framkvæmdir.

Neytandi sendir lýsingu á verki sem hann vill láta vinna, t.d. lagfæringu á húsi eða íbúð. Iðnaðarmenn senda tilboð. Neytandinn fær upplýsingar um þá sem bjóða þjónustu; menntun, réttindi og kennitölu.

Náist samningar áskilur Naglinn sér umboðslaun frá verktaka sem fara lækkandi eftir stærð verks, geta verið að meðaltali um 6-7% af tilboði hans. Umsagna- og einkunnakerfi vefsins tryggir neytendum nauðsynlegar upplýsingar um hvernig þeir verktakar sem bjóða í verkið hafa staðið sig hingað til. Við verklok gefa bæði kaupandi og seljandi hvor öðrum einkunn, frá núll og upp í fimm nagla. Reynslan hefur sýnt að eftirfylgni vantar á verktakamarkað og fólk treystir mikið á umsagnir frá jafningjum sínum, öðrum neytendum. 

Við þróun síðunnar var haft samráð við Samtök iðnaðarins, Neytendasamtökin, Húseigendafélagið og Tækniskólann til þess að tryggja sem besta og sanngjarnasta þjónustu fyrir alla aðila. 

Vefurinn skapar umgjörð fyrir verktaka og neytendur til að stunda heiðarleg viðskipti.

Kynntu þér málið á nagli.is