Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar vorið 2012
Umsækjendur skulu uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og leggja fram áætlun um vinnustaðanámið og fyrirsjáanlega framvindu þess.
- Styrkir geta numið allt að 20 þús. kr. á viku og eru veittir til 24 vikna að hámarki. Styrkur er greiddur eftir því sem námi vindur fram.
- Umsóknum er skilað á sérstöku eyðublaði sem er að finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.
- Umsókn skal fylgja yfirlit um framvindu vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar.
- Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti á olafur.g.kristjansson@mrn.is