Fréttasafn



  • Vaxtarsprotinn 2011

16. apr. 2012

Samtök iðnaðarins óska eftir tilnefningum til Vaxtarsprota ársins

Samtök iðnaðarins auglýsa eftir tilnefningum til Vaxtarsprota ársins.

Frestur til að skila tilnefningum til forvals er til mánudagsins 23. apríl nk. Þau fyrirtæki sem komast í gegnum forvalið þurfa síðan að skila staðfestingum endurskoðanda um þau atriði sem fram koma í viðmiðum dómnefndar fyrir 28. apríl nk.

Vaxtarsprotinn, er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins/SSP, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknamiðstöðvar Íslands um val á vaxtarsprota ársins.

Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukin áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Skipulag og dómnefnd

Eins og áður skipa aðstandendur verkefnisins þriggja manna dómnefnd sem sér um skipulag, kynningu og val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningar og nafnbótina „Vaxtarsproti ársins“.

Tilnefningar:

Hver sem er getur tilnefnt fyrirtæki sem hann telur eigi erindi í þetta val. Í forvali þarf aðeins að senda inn eftirfarandi lykiltölur úr rekstri:

  • Veltutölur síðustu tveggja ára
  • Heildartölur fyrir rannsókna- og þróunarkostnað fyrirtækisins fyrir sömu ár

Ef fram kemur eftir forval að fyrirtækið komi til greina sem “Vaxtarsproti ársins” þarf að senda inn staðfestingu löggilts endurskoðanda á að innsendar lykiltölur séu réttar og að fyrirtækið uppfylli skilyrði í lið 3 í eftirfarandi viðmiðum sem dómnefnd leggur til grundavallar vali á vaxtarsprota ársins.

Viðmið til að velja Vaxtarsprota ársins

  • Megin viðmiðið er vöxtur í veltu sem er mældur með þeim hætti:
    (V1 – V2)/ V2 þar sem: V1 er velta síðasta árs, en V2 er velta ársins þar á undan
  • Þá þarf fyrirtækið að uppfylla skilgreiningu um sprotafyrirtæki – þ.e. að verja meira en 10% af veltu í rannsókna- og þróunarkostnað að meðaltali fyrir bæði árin sem tekin eru til viðmiðunar og að heildarvelta fyrra ársins (V2) sé yfir 10 milljónum og undir einum milljarði ísl. króna.
  • Þá þarf frumkvöðullinn/arnir að vera staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera að meirihluta í eigu “stórfyrirtækis” (þ.e. fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi), fyrirtækis í aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar.

Viðurkenningar:

Það fyrirtæki sem tilnefnt er og sýnir mestan hlutfallslegan vöxt samkvæmt framangreindum viðmiðum hlýtur nafnbótina “Vaxtarsproti ársins” Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun þar sem “Vaxtarsproti” viðkomandi árs er skráður. Þá fær fyrirtækið einnig sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Þá verða einnig veittar sérstakar viðurkenningar til tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónir kr. og hins vegar sem velta á bilinu 100-1000 milljónir króna.

Samtök iðnaðarins veita einnig sérstaka viðurkenningu til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim áfanga á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði kr. Þau sprotafyrirtæki sem hafa náð þessu marki á árinu 2011 eru eindregið hvött til að láta okkur vita.

Viðurkenningar veittar í sjötta sinn í maí 2011

Viðurkenningar Vaxtarsprotans voru veittar í fyrsta sinn í mars 2007.

  • Marorka ehf. hlaut „Vaxtarsprotann 2007“ en Gagarín ehf., Stiki ehf. og Stjörnu-Oddi hf. hlutu viðurkenningu fyrir góðan vöxt.
  • Mentor ehf. sem hlaut „Vaxtarsprotann 2008“, Betware hf., Valka ehf. og Kine ehf. hlutu einnig viðurkenningu fyrir góðan vöxt.
  • Mentor ehf. hlaut einnig ”Vaxtarsprotann” árið 2009, en Naust Marine hf., Gogogic ehf. og Saga Medica ehf. fengu viðurkenningu fyrir góðan vöxt.
  • Nox Medical ehf. hlaut Vaxtarsprotann 2010, en Valka ehf., Hafmynd ehf. og Menn og Mýs ehf. fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan á sama tímabili.

·         Handpoint ehf. hlaut Vaxtarsprotann 2011 en Marorka, Trackwell og Gogogic fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt á því ári.


Í ár verða viðurkenningar veittar í byrjun maí.

Frestur til að skila tilnefningum og staðfestingum löggilts endurskoðanda er til fimmtudagsins 28 apríl.

Frestur til að skila tilnefningum til forvals er til þriðjudagsins 23. apríl nk. Þau fyrirtæki sem komast í gegnum forvalið þurfa síðan að skila staðfestingum endurskoðanda um þau atriði sem fram koma í viðmiðum dómnefndar fyrir 28. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Lúðvíksson, david@si.is