Fréttasafn



  • bátar

21. maí 2012

LÍÚ hvetur stjórnvöld til að leggja grunn að samráðsvettvangi

Landssamband íslenskra útvegsmanna skorar á stjórnvöld að draga sjávarútvegsfrumvörpin til baka og hvetur þau til að leggja grunn að samráðsvettvangi svo skapa megi sátt um deilur um stjórn fiskveiða. Áskorunin birtist í auglýsingum í dagblöðunum um helgina.

Í auglýsingunni segir að í stað sátta hafi frumvörpin orðið tilefni harðari deila um stjórn fiskveiða en nokkru sinni fyrr. Umsagnir og ályktanir um frumvörpin sýni það svo ekki sé um villst.

Hvatt er til þess að fulltrúar allra stjórnmálaflokka, sveitarfélög og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi komi að þessari vinnu.

Auglýsinguna má sjá hér