Fréttasafn



  • IÐAN2013

8. apr. 2013

Nýr sviðsstjóri á prenttæknisvið IÐUNNAR

Ingi-Rafn-OlafssonIngi Rafn Ólafsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri á prenttæknisviði IÐUNNAR. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri sem starfað hefur undanfarin sjö ár hjá IÐUNNI sem sviðsstjóri prenttæknisviðs og þar á undan hjá Prenttæknistofnun sagði starfi sínu lausu í febrúar s.l.

Starfið var auglýst og sóttu 29 einstaklingar um stöðuna. Ingi Rafn starfaði áður sem framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar frá 2001 til 2005 og undanfarin ár sem markaðs- og kynningarstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Hann mun hefja störf að fullu frá og með 1. maí. Ingi Rafn er boðinn velkominn til starfa um leið og Birni M. Sigurjónssyni er þakkað fyrir vel unnin störf á liðnum árum og óskað honum velfarnaðar í framtíðinni.