Fréttasafn



30. maí 2013

Umslag fær ISO 27001 öryggisvottun

Fyrirtækið Umslag hefur nú fengið ISO 27001 öryggisvottunina og er  fyrst íslenskra fyrirtækja í prentiðnaði til  að fá slíka vottun.

Með þessari vottun er tryggt að Umslag fylgi ströngum kröfur um rétta meðhöndlun gagna og upplýsinga sem og notkun ferla í rekstri og aðbúnaði. Vottunin nær yfir alla starfsemi Umslags og er endurnýjuð árlega af bresku staðlastofnunni BSI, sem gerir þá úttekt á öllum þáttum sem að vottuninni snúa. 

Fyrirtækið Umslag leggur mikla áherslu á, að geta sýnt fram á að þeim kröfum sem settar eru fram í vottuninni, sé framfylgt með viðeigandi hætti. Slíkt sé vottur um metnað fyrirtækisins til að vera fremst í flokki fyrirtækja í prent- og gagnavinnslu.

Unnið hefur verið að innleiðingu ISO 27001 öryggisvottunarinnar  hjá Umslagi í tæpt ár og hafa sérfræðingar fyrirtækisins Stika veitt ráðgjöf varðandi verkefnið.

Sölvi Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Umslags telur engan vafa á því að þessi vottun auki enn frekar tiltrú viðskiptavina Umslags varðandi vinnslu trúnaðargagna. Ljóst sé, að mikil vakning er nú varðandi öryggismál og því kalli sé m. a. svarað af Umslags hálfu  með ISO 27001 öryggisvottuninni. Umslag hafi síðastliðin 20 ár sérhæft sig í vinnslu viðkvæmra gagna og vottunin styrkir enn frekar þá vinnslu.

Þá má geta þess, að Umslag fékk Svans-vottun á árinu 2012, en slík vottun tryggir að unnið sé samkvæmt öllum umhverfisstöðlum sem slík vottun krefst.

Þá hefur Umslag verið valið sem framúrskarandi fyrirtæki af fyrirtækinu Creditinfo s. l. þrjú ár. Til að öðlast slíka staðfestingu þarf viðkomandi fyrirtæki að standast styrkleikamat Credirinfo og uppfylla ströng skilyrði sem lögð eru til grundvallar á framúrskarandi fyrirtækjum.

 Á myndinni má sjá Ingvar Hjálmarsson, gæðastjóra Umslags, Árna H. Kristinsson, framkvæmdastjóra BSI á Íslands og Sölva Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóra og eiganda Umslags.