20. nóv. 2018

Nýr viðskiptastjóri á framleiðslusviði SI


Gunnar Sigurðarson hefur verið ráðinn viðskiptastjóri á framleiðslusviði SI og hefur þegar hafið störf. Gunnar er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MPA gráðu í stjórnsýslufræðum, einnig frá Háskóla Íslands. 

Gunnar hefur starfað hjá Íslandsstofu síðustu ár sem verkefnastjóri ferðaþjónustu og skapandi greina. Áður hefur hann starfað við dagskrárgerð og fréttamennsku hjá Ríkisútvarpinu, sem verkefnastjóri hjá fjölmiðlanefnd og sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. 

Vísir, Viðskiptablaðið, mbl.is, 21. nóvember 2018.  K100, 21. nóvember 2018


Fáum við leyfi þitt til að nota Google Analytics til að safna nafnlausum upplýsingum um notkun þína á þessum vef?

Sjáðu nánar á persónuverndarsíðu okkar hvaða áhrif svar þitt hefur.