Fréttasafn



12. ágú. 2019 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Óskað eftir tilnefningum fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins

Frestur til að skila inn tilnefningum fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins rennur út 7. september næstkomandi. Verðlaunin sem afhent verða 9. október næstkomandi í Hörpu eru af tvennum toga þar sem valið verður annars vegar umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins. Hægt er að senda tilnefningar á netfangið sa@sa.is merkt „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.

Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Hefur komið fram með nýjung – vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

NM94150-SA-umhverfisverdlaun-netpostur