Fréttasafn



12. jún. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Óskað eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann 2018

Hægt er að senda inn tilnefningar til forvals fyrir Vaxtarsprotann 2018 fram til 22. júní næstkomandi. Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli síðasta árs og ársins á undan. Skilyrði er að frumkvöðull þarf að vera til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar. Hægt er að senda inn tilnefningar með tölvupósti á netfangið sigridur@si.is. Á myndinni hér fyrir ofan eru stjórnendur og starfsmenn Kerecis sem hlaut  Vaxtarsprotann 2017 ásamt ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Vaxtarsprotinn-logoVaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Dómnefnd

Aðstandendur verkefnisins skipa þriggja manna dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Viðurkenningar

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun. Þá fær fyrirtækið einnig sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til þeirra tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 millj. kr. og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 millj. kr.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007). 

Velta meira en 1 milljarði í fyrsta sinn

Samtök iðnaðarins veita einnig sérstaka viðurkenningu til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki og er hægt að senda inn ábendingar með tölvupósti á netfangið sigridur@si.is.  

vaxtarsprotinn