Fréttasafn



17. sep. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda

SÍK auglýsir eftir umsóknum

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda auglýsir í Fréttablaðinu eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði félagsins. Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga allir sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndaverk sem sýnd hafa verið í sjónvarpi á árinu 2019. 

Umsóknir berist fyrir 20. október 2020 til: SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda c/o Samtök iðnaðarins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á sik@producers.is. Aðrar umsóknarleiðir teljast ekki gildar. 

Á vefsíðu SÍK er hægt að nálgast nánari upplýsingar, úthlutnarreglur og eyðublað.

SIK_IHMAUGL_SH_2x10_2020